2002-08-29Uncategorized Standard
Miðvikudagur 28. ágúst 2002
No news is good news?
Lífið lekur áfram, vakna/vinna/kvöldmatur/sjónvarp/lesa bók/sofa… Það er frí næsta mánudag (Labor Day), en það lítur út fyrir að Finnur verði að vinna þrátt fyrir það því það er eitthvert “deadline” hjá Greenborder að renna upp. Í kvöld kláraði ég The Copper Beach eftir Maeve Binchy (alltaf gaman að lesa djúsí sögur frá Írlandi) á meðan Finnur var í Warcraft III. Annars bættist nýr barnavefur við hérna til vinstri, Hildur og Óli eru að setja upp vef fyrir Þórdísi dóttur sína. 🙂