2002-09-17Uncategorized Standard
Mánudagur 16. ágúst 2002
Why do I bother…?!!?!
Mætti í vinnuna klukkan 11 í morgun (því við komum svo seint heim í gærkvöldi) en byrjaði ekki að vinna vinna fyrr en klukkan næstum 18 (var að finna til afmælisgjafir á netinu og spjalla við skrifstofufélagana fram að því) … og vann svo til hálf átta og fór þá heim. Af hverju var ég einu sinni að hafa fyrir því að mæta!? 🙂
Annars er slór mitt að miklu leyti því að kenna að proffinn minn hefur verið fjarverandi undanfarið og þá hættir manni til að hætta að vinna… 🙂 Svo er bara ein og hálf vika í að skólinn byrji – og ég þarf að ákveða hvort ég ætli að drepa sjálfa mig og taka 3 kúrsa eða hafa það tiltölulega “nice” og taka bara tvo kúrsa… hmmm….