Mánudagur 30. desember 2002
Leti, ó leti
Byrjaði á “Stupid White Men” sem ég gaf Finni í jólagjöf. Þegar ég var sokkin í djúpt þunglyndi og orðin örvæntingarfull um framtíð heimsins eftir að hafa rifjað upp síðustu bandarísku forsetakosningarnar þá lagði ég frá mér bókina og horfði á Nicole Kidman í viðtalið hjá Charlie Rose. Gott viðtal, ég held að ég væri alveg til í að vera fluga á vegg hjá henni í smá tíma. Stundaði síðan vefsíðugerð og afraksturinn af því er kominn á myndadagbókina. Fékk að vita að nýja stafræna myndavélin sem við keyptum fyrir jólagjafapening frá pabba er á leiðinni.
Afrekaði líka að komast út úr íbúðinni og láta gera við dekk á bílnum okkar. Lenti á voða hressum manni, eiginlega aðeins of hressum, sem gerði mér tilboð í að skipta á öllum dekkjunum – bara litlir $400 með öllu. Hmmm… Best að bera það undir hitt höfuð fjölskyldunnar fyrst. 🙂