2003-03-22Uncategorized Standard
Laugardagur 22. mars 2003
Nýjasta nýtt…
Ég er að leggja af stað út á SFO flugvöll núna, flug BA0286 fer þaðan til London klukkan 19:30. Ég lendi á sunnudegi klukkan 14:00 að staðartíma… En það nýjasta nýtt er að ég var að kaupa miða til Íslands líka… Fer þann 27. mars til Íslands og verð fram á mánudaginn 31. mars. Þá flýg ég til London, og svo morguninn eftir til San Fran… Þetta verður nú meira spaneríið!! 🙂