2003-03-26Uncategorized Standard
Miðvikudagur 26. mars 2003
Ennþá í Englandi! 🙂
Ahh… Þetta er nú ljúfa lífið heldur betur. Í gær var tæplega fjórum tímum varið í búðarráp og í dag var meira rápað í búðir… Hafði upp úr krafsinu tvennar buxur, tvenna boli, slatta af sokkum og gjafir handa bræðraskrílnum heima á Íslandi… 😉 Svo taldi ég pabba á að kaupa DVD spilara svo nú verða jóla-og afmælisgjafakaup miklu mun auðveldari! 😉