2003-11-22Uncategorized Standard
Laugardagur 22. nóvember 2003
Það kom allt í einu helgi!
Í dag er víst laugardagur! Hvernig gerðist það?! Hvað um það, laugardagur var það heillin og lítið við því að gera! 🙂 Í tilefni dagsins þvoðum við fjórar þvottavélar, ég hringdi í móðurlandið (það mun vera heim til mömmu) og síðan vorum við að koma úr 7 ára afmæli hjá Sif, dóttur Guðrúnar og Snorra. Á leiðinni heim stoppuðum við reyndar í köfunarbúðinni þar sem Finnur leigði búnað – því á morgun skal kafað. Ég ætla að leita uppi jólagjafir á meðan enda orðið óhugnanlega stutt til jóla, sérstaklega póstlega séð…
P.s. Blóðþrýstingur í morgun: 130/77 🙂