2004-02-20Uncategorized Standard
Föstudagur 20. febrúar 2004
Vikan flogin
Allt í einu er kominn föstudagur og ég ekki búin að gera neitt af því sem ég ætlaði að gera (lesist: taka til)… Ég fór reyndar og kíkti í búðir og komst að því mér til mikils hryllings að sumarliturinn í ár virðist vera ferskjulitur (og gulur og bleikur)!!! Þess fyrir utan voru allir bolirnir sem ég mátaði svo þunnir að þeir voru hálfgegnsæir þannig að ég endaði bara á því að kaupa einar svartar Nike buxur, því þær pössuðu, sem er ekki svo lítið mál.
Svo buðum við Tomma hennar Stínu fínu í kvöldmat og héldum honum á snakki til miðnættis sem er víst þrjú um nótt á Montreal tíma – úpps! Hann flýgur aftur til Kanada í dag, svo vonandi tekst honum að sofa í flugvélinni…