Miðvikudagur 3. mars 2004
Íslandsferð!!
Stórfréttir dagsins er að við keyptum loksins flugmiða til Íslands! Við lendum þann 16. mars og förum þann 7. apríl og borgum fyrir herlegheitin $1600 sem er nokkuð vel sloppið. Okkur langaði að vera fram yfir páska, en einokunarflugfélagið Flugleiðir (aka Icelandair) sendi bara tilboð sem nær til 7. apríl og þar sem ég á eiginlega að mæta aftur í skólann þann 1. apríl þá verðum við að sætta okkur við að missa af páskunum í ár. Á móti kemur að við skírum þá líklega 28. mars, og svo eru tvær fermingar þann 4. apríl…
Í öðrum fréttum er að við Finnur eigum FJÖGURRA ÁRA brúðkaupsafmæli í dag – Jibbííí! 🙂 Mikið rosalega líður tíminn hratt! 🙂 Þar með er afmælisvertíðin næstum búin, það er ekkert afmæli á morgun en daginn eftir þá á Eyrún systir Finns afmæli! 🙂 Klikkun! 🙂