Sunnudagur 7. mars 2004
Mannfagnaðir
Við vorum að koma úr tvöfaldri afmælisveislu hjá Soffíu og Ágústi – Alma Hildur varð fjögurra ára í janúar og Kjartan verður 14 ára á morgun. Það var að venju margt um manninn og fullt af góðum mat og ekki var verra að veðrið var ÆÐISLEGT – og það er spáð 23 stiga hita alla næstu viku! 🙂
Í gær fórum við svo á “childbirth class reunion” hjá Blossom Birth þar sem ég fór líka í óléttujóga. Þar mættu 7 pör með nýju litlu börnin sín (þar af vorum tvö pör úr okkar námskeiði) og við skiptumst á fæðingarsögum og hvernig þetta gengi allt saman. Merkilegt nokk þá spönnuðu þessi 7 pör svo til allan skalann í barnseignum, allt frá “hröðu fæðingunni” til “voða eðlilegt” í “langt og erfitt” og “neyðar-keisara”. Það var voða sætt að sjá öll börnin sem voru öll yngri en Anna – og sum voða ný. Ótrúlegt hvað hún hefur vaxið mikið á skömmum tíma! 🙂