2004-03-26Uncategorized Standard
Föstudagur 26. mars 2004
Fjölskylda og aftur fjölskylda
Þetta er búið að vera alveg rosalega rólegt hjá okkur, við sofum til hádegis og svo skríðum við út fyrir Mosó svona um 2-3 leytið. Yfirleitt förum við í Vesturbæinn til mömmu, eða þá til einhverra annarra fjölskyldumeðlima – svo höfum við líka náð að kíkja á nokkra vini (Hólmfríði & Óla og Halla & Öddu aðallega) en ég hitti líka Hjördísi og Helgu og þeirra ungu menn (2ja ára Arnar og 5 vikna Jóhannes) í gær. Þetta er því bara búið að vera þvílíkt “næs” tími! Þurfum við nokkuð að fara aftur til USA? 🙂
Family, and then some
The last few days have been spent with our respective families and our friends. What a sweet life! Do we really have to go back to the USA? 🙂