Sunnudagur 18. apríl 2004
Köfunardagur
Núna er klukkan 7 um morgun, og við erum á leiðinni til Monterey þar sem Finnur ætlar að kafa með Loga og Tassanee. Við verðum væntanlega ekki komin aftur fyrr en um 7 í kvöld, svo þetta verður frekar langur dagur! Við Anna ætlum bara að taka því rólega, rölta um og kíkja á sædýrasafnið því ég fékk frímiða þangað (úhhh, ný hákarlasýning) þegar við pabbi fórum þangað forðum daga (í feb).
Annars ekki mikið að frétta. Anna verður duglegri og duglegri að grípa í hluti og halda haus með hverjum deginum og hún brosir vel og mikið þegar það er brosað til hennar! 🙂 Ég er búin að vera á myndafyllerí og búin að panta líklega 300-400 myndir í gegnum ofoto.com… Það er svona þegar maður eignast barn! 🙂 En núna þurfum við að fara að haska okkur.