2004-04-20Uncategorized Standard
Þriðjudagur 20. apríl 2004
Fór í skólann
Ég mætti í skólann í dag til að fara á hópfund og það var ágætt. Fínt að komast aðeins út úr húsi. Ég var heima að “vinna” í gær og í lok síðustu viku og það gekk svo sem ágætlega fyrir utan að klukkan sex var ég alveg búin að fá nóg og byrjaði að bögga Finn um að koma heim til að hafa einhvern til að tala við! 🙂 Barnahjal, kúkableiur og brjóstagjöf eru svo sem ágæt út af fyrir sig, en fyrr má nú vera… hehe.
Í kvöldmat verða svo íslenskar pyslur sem við komum með að heiman.