2004-04-26Uncategorized Standard
Mánudagur 26. apríl 2004
Algjör steik
Það er 33 stiga hiti hérna núna og við mæðgur við það að bráðna. Spurning með að fara í göngutúr í loftkælda búð í nágrenninu og vera bara þar þangað til sólin sest…!!
Anna var annars að vakna í þvílíkt góðu skapi. Það mætti halda að hitinn fari bara vel í hana… Nú er aðal málið hjá henni að spyrna fótunum í allt og alla. Svo sveigir hún all svakalega upp á sig á gólfinu líka þannig að hún er farin að snúa sér um 90 gráður þar. Hún var afskaplega nálægt því að velta sér um daginn, en það vantar herslumuninn.
Svo uppgötvuðum við að Anna er rosalega hrifin af verkinu Pétur og úlfurinn sem við fengum frá Elsu og Þráni. Hún var næstum búin að snúa af sér hausinn að reyna að sjá hvaðan tónlistin kæmi… hehe… 🙂