2004-05-22Uncategorized Standard
Laugardagur 22.maí 2004
Túristar
Hann “Kanada-Siggi” sem vinnur með Finni tók okkur í túristarúnt í dag með sonum sínum tveimur (8 og 10 ára) og það var alveg frábært. Á leiðinni hittum við Tomma og Stínu ásamt mömmu Stínu – en eins og sumir vita þá vorum við Stína bekkjarsystur í MR og Tommi var með Finni í Tölvuháskólanum. Lítill heimur!
Núna erum við heima hjá Sigga og Yvonne í risa-grillveislu þar sem allt er morandi í ungabörnum. Anna Sólrún er elst 5 mánaða, svo er Isold þeirra Sigga og Yvonne 3ja mánaða og yngstur er einn 2ja mánaða. Þess fyrir utan er kona Jóa, vinnufélaga Finns, ólétt og á að eiga í júlí!
Húsnæðisfréttir
Jibbííí-skibbííí!!! Við fengum þetta í póstinum í dag
Autumn Quarter/Semester 2004-05: Escondido Village 2BR Apt, Unfurnished
Summer Quarter 2004: Escondido Village 2BR Apt, Unfurnished
Nú er bara að vona að ég geti dílað við skrifstofuna um að fá að flytja inn eins fljótt og hægt er…