2004-08-28Uncategorized Standard
Hiti, hiti, hiti
Það var roslega heitt úti í dag, meira en 30 stiga hiti og það passað að Anna var með hita líka. Hún var með um 38 stiga hita meiripart dags eða þangað til að við gáfum henni parasetamól fyrir ungabörn – þá lækkaði hann aðeins. Sem betur fer ældi hún ekki meira í gær og um sexleytið hresstist hún nógu mikið til að ég náði að fara í saumaklúbb upp í borg. En í dag var Anna sem sagt með hita en sem betur fer ekki mjög aum. Við vonum að hún verði orðin betri á morgun…