Ég á afmæli í daaag… ég á afmæli í daaag…
2010-03-01Uncategorized Standard
Jammsalabamm, þar með er ég orðin þrjátíu og þriggja ára. Víííí! Við ætluðum að halda ör-veislu hér í dag, en þar sem Bjarki er ekki ennþá orðinn hitalaus, þá þótti okkur skynsamlegra að fresta hátíðarhöldum. Finnur eldaði samt sem áður lambalæri og bjó til sósu og alles svo það var ekki algjör ládeyða. Af Bjarka er það annars að frétta að hitinn er þrjóskari en oft áður, og ef hann vaknar ekki hitalaus á morgun, þá verður honum skutlað í læknisheimsókn.
Það er annars ótrúlega mikið af fólki á afmæli um þessar mundir, og óska ég öllum hjartanlega til hamingju með afmælin stór sem smá! 🙂