Þakkargjörðarhátíð
2009-11-26Uncategorized Standard
Í dag var “þakkargjörðarhátíðin” (Thanksgiving), sem er á við jól án gjafa. Við endurtókum leikinn frá því í fyrra og borðuðum mat hjá Katie og Dirk. Við mættum með (mitt fyrsta) berjapæ, salat, sósu og sítrónur til límonaðigerðar (þau eiga svona líka sniðuga sítrónu-kreystara-vél). Maturinn tókst afskaplega vel og við rúlluðum út úr húsi þegar líða tók á kvöldið.