Kominn heim aftur
2009-10-12Uncategorized Standard
Eftir rúmlega 7 tíma flug til Seattle og 2ja tíma flug til Kaliforníu erum við komin heim aftur, dauðþreytt en sæl, guðslifandi fegin að ferðalaginu langa er lokið. Anna stóð sig eins og hetja en var mjög þreytt undir lokin en við náðum að sofa smá í fluginu frá Seattle. Er annars orðinn rangeygur af þreytu; Anna sofnuð uppi og ég búinn að setja úlpurnar í frystinn og hangikjötið upp í fataskáp… eða var það öfugt? (best að tékka). 🙂 Allavega… góða nótt!