Á leikvelli
2009-10-17Uncategorized Standard
Laugardagur er að kvöldi kominn. Vikan leið hratt hjá, enda ég með hausinn grafinn í Skriftar-landi, í svona “one-last-push” stuði (sem vonandi endar í desember, en ekki í mars!). Í tilefni af því þá er Anna komin í heillar-viku eftirskólavist (ekki bara 3ja daga) og við þar með opinberlega farin að borga meira fyrir barnagæslu en leigu. Velkomin til ekki-velferðarríkisins!
Í dag erum við annars búin að þrífa og taka aðeins til, stinga upp beð í leikskóla Bjarka, fara í sund, kaupa buxur, hitta Tinu og Justin á leikvelli og svo borða með þeim (og öðrum) kvöldmat á veitingastað. Á morgun er svo Ekkert-Planað dagur. Vei fyrir því? 🙂