Fjarstödd vegna sjónvarpsgláps
Jamm, það hefur verið hljóðlátt á vefsíðunni undanfarið, og já, ég er enn og aftur dottin í alvarlegt sjónvarpsgláp. Þetta byrjaði að vanda sakleysislega… ég var að skoða listann yfir vinsælustu þáttaraðirnar á Hulu og rakst á þá … ég þori varla að segja… Roswell. Jamm. Roswell. Þið megið skjóta mig núna. Og já, það er þessi %”$(#)!! forboðna ást. Gets me eeeevery time.
Hvað um það. Það rann upp fyrir mér að ég hafði aldrei sé fyrsta seasonið, svo ég lét á reyna og #fússsshhhsj# þar með var ég horfin. Ég man eftir að ég var alvarlega húkkt fyrsta árið okkar hérna úti, en á einhverjum tímapunkti gafst ég upp. Nú er ég komin á annað season, og enn sem komið er heldur þátturinn áhuganum. Það hjálpar líka að eftir að hafa horft á fyrsta seasonið, þá las ég mér stuttlega til um hvað gerist í hinum tveimur season-unum og þar með er ég aðeins betur undirbúin undir bullið sem gerist alltaf þegar þáttaraðir eru við það að vera kippt úr sambandi.
En sum sé, í augnablikinu er ég að njóta þess að vera á við táningsstelpu í þroska. Mmmmm… namm! 🙂