Skammi
2009-06-10Uncategorized Standard
Klukkan er 01:30, aðfararnótt miðvikudags. Ég er ennþá á fótum. Ég held ég þurfi svona lífsþjálfara í joggingfötum til að koma inn, helst skokkandi, og segja einn, tveir, einn, tveir…, á fætur nú og upp í rúm…, einn, tveir, einn, tveir…, bannað að stoppa í tölvunni uppi á meðan þú tannburstar…, einn, tveir, einn, tveir… þú gerir þér grein fyrir að börnin vakna klukkan sjö ekki satt?…, einn, tveir, einn, tveir… það eru bara fimm tímar þangað til… einn, tveir, einn, tveir…,
Ókei, ókei, ókei… ég er aaaaalveg að koma… þarf bara að blogga fyrst!