Borð og stólar
2009-06-16Uncategorized Standard
Við fluttum nýja borðið og stólana inn úr bílskúrnum á laugardagskvöld því að við áttum von á þremur pörum í mat daginn eftir. Húsgögnin eru tæknilega séð ekki full-olíuð, en komin langleiðina þangað. Til að prófa þá setti Finnur vatnsdropa á borðið og þeir sátu bara þar í rúmar tvær mínútur án þess að nokkuð gerðist. Eitthvert kvöldið í vikunni ætlum við samt að setja eina umferð á til viðbótar… vonandi.