Laugardagsmarkaður
2009-05-09Uncategorized Standard
Á laugardeginum fórum við á markað í miðbæ Eugene sem er haldinn vikulega. Þar var margt merkilegt að sjá, og sérstaklega skemmtilegur hippa/pönk/alternative fílingur í gangi. Eftir markaðsferðina fórum við og vorum viðstödd síðasta fótboltaleik tímabilsins hjá Sigtryggi, og borðuðum smá snarl á eftir. Deginum lauk að sjálfsögðu með ljúffengum kvöldmat.