Í Oregon
2009-05-08Uncategorized Standard
Við flugum til Portland í Oregon-fylki hérna rétt fyrir norðan okkur á föstudeginum. Þegar þangað var komið leigðum við bíl og keyrðum í tvo tíma suður til Eugene þar sem Elsa, Þráinn og börn hafa dvalið í vor á meðan Þráinn stundar rannsóknir. Við vorum þvílíkt heppin með veður, því það var nýstytt upp eftir vor-langa rigningu og því farið beint út í bakgarð í sápukúlublástur.