Leikskóla pott-lukka
2009-04-21Uncategorized Standard
Það var aftur heitt í dag, rúmlega þrjátíu stiga hiti. Mér varð ekki mikið úr verki uppi í vel heitri skrifstofunni og var bara nokkuð fegin að sleppa út til að mæta á leikskóla pott-lukku klukkan hálf-fimm. Þessi vika er nefnilega “vika hins unga barns” og í tilefni af því er verið að halda alls konar veislur og skemmtanahöld. Eftir pott-lukkuna mættu Sarah, Augusto og Jason í heimsókn með kvöldmat með sér. Þau búa hins vegar í húsi sem er betur einangrað en okkar, og voru því að kafna úr hita allt kvöldið.