Ech, kalifornía…
2009-04-20Uncategorized Standard
Kalifornía var minna skemmtileg í dag en yfir helgina, vel steikjandi hiti úti (rúmlega 30 gráður) og lítill sem enginn kvöldkuldi. Sem betur fer á þetta að ganga fljótt yfir, bara heitt aftur á morgun og svo er spáð 16 stigum og rigningu um helgina. Það verður samt örugglega lóðrétt rigning, en ekki lárétt eins og var víst á klakanum í dag.
Myndirnar hérna að neðan voru teknar með farsímanum í morgun. Ég er að prófa mig áfram með að senda beint úr símanum á bloggið, voða spennó! 🙂