9 ára brúðkaupsafmæli
2009-03-03Uncategorized Standard
Í dag eigum við Finnur 9 ára brúðkaupsafmæli!! Gjafaþema dagsins er víst “pottery”, en okkur vantar ekkert leirtau, svo að ég bjó til leir-hjarta í staðinn. 🙂 Í sumar eigum við svo 15 ára “vera-saman” afmæli… það er aldeilis að tíminn flýgur!! 🙂
Verst er að ég er búin að týna hleðslutækinu fyrir stóru myndavélina, svo þessar myndir eru teknar með gömlu S45 títlunni okkar. Svona er maður nú orðinn gamall og minnislaus!! 🙂
p.s. Innilegar hamingjuóskir til Hjördísar og Hauks með nýfæddan son. Hann fæddist eðaldaginn 1. mars!! 🙂