Tennur, tennur…
2009-02-06Uncategorized Standard
Bjarki var fúll á móti í morgun og uppskar verkjalyf fyrir vikið. Ég held að ein tönnin hans sé að troða sér niður á milli framtannanna og eins jaxlsins, amk var gómurinn allur bólginn. Verkjalyfjaður sofnaði hann vandræðalaust í morgun í tæpa tvo tíma og átti víst góðan dag á leikskólanum.
Anna hins vegar átti pirraðan morgun, og pirraðan dag á leikskólanum, og pirrað kvöld. Æst, uppstökk, óhlustandi, óhlýðandi o.s.frv. Við erum að vona að morgundagurinn verði betri!
Í lokin vil ég svo benda á afskaplega fróðlegan RadioLab þátt um Val. Viltu köku eða ávöxt??! 🙂