Eyrnaskoðun
2009-02-13Uncategorized Standard
Ég fór með Bjarka til læknisins í morgun til að athuga ástandið á eyrunum eftir síðasta sýklalyfjaskammt. Niðurstaðan var að vinstra eyrað var í góðu lagi, en það hægra var víst heldur rautt. Við ákváðum samt að láta frekari sýklalyf eiga sig, amk þangað til alvarlegri einkenni kom fram. Í staðinn keypti ég “eyrnaolíu” með kamómillu og ætla að sjá hvort að það hjálpi eitthvað.