Sund og heimsókn
Við Anna skutluðum Lulu heim til sín rétt fyrir hádegi, og keyrðum því næst í sundlaugin sem er rétt hjá. Það var gott að komast aftur í sund, en ég hef ekkert farið í rúman mánuð. Þegar heim kom þá var Anna svo þreytuleg að ég fór upp með hana að lúra og hún steinsofnaði, sem hefur ekki gerst síðan í haust. Um kvöldið buðum við Augusto og Söruh í kvöldmat, og síðan kíktu Todd og Torie við eftir mat.
Merkisatriði dagsins var að við fengum síðbúna jólagjöf frá Augusto og Söruh, Wii tölvuleikinn World of Goo. Er þar kominn “Lemmings” leikurinn í nýjum búning, og er leikurinn alveg jafn ávanabindandi og forverinn. Í stuttu máli gengur leikurinn út á að maður á að leiða slímbolta frá A til B yfir alls konar landslag. Slímboltarnir hafa alls konar eiginleika, þeir festast saman á ákveðinn máta eða fljóta til dæmis og trikkið er að púsla þeim rétt saman. Gaman gaman!