Tæknilegir örðugleikar
2008-12-20Uncategorized Standard
Vefþjónninn okkar hefur verið með múður undanfarna daga. Í dag gerði ég atlögu að því að laga hann (ríbúta) en uppgötvaði þá að ég hef ekki hugmynd um hvað lykillinn að skrifstofunni minni er. Ég held að ég hafi ekki notað lykilinn í rúmlega ár, því að það er alltaf einhver á skrifstofunni til að hleypa mér inn. Núna eru hins vegar allir flognir í jólafrí og þar með kemst ég ekki þangað inn til að slökkva og kveikja á tölvunni.
Í sárabætur setti ég upp tvær myndasíður frá því í, erm, janúar á þessu ári. Gúlp. Riiiiiisa-gúlp hvað ég er komin langt á eftir með myndirnar!