Gleðilegt nýtt ár!!!
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir öll þau gömlu!! 🙂 🙂
Happy New Year!! Thanks for all that has passed!! 🙂 🙂
Við erum hér í góðu yfirlæti hjá Gunnhildi frænku og það er víst komið nýtt ár á Íslandi, þó klukkan sé bara rétt rúmlega fjögur eftir hádegi hér á gamlársdag. Við áttum góða daga í borg Heilags Diego, fórum í þrjá skemmtigarða á þremur dögum og keyrðum svo dálítið uppgefin norður eftir til Los Angelesar í gær. Ég er á því að þegar maður eigi börn þá eigi maður bara að fara í frí þar sem maður þekkir einhvern í nágrenninu – eða með ferðafélaga sem eiga börn á sama aldri!! 🙂
Í kvöld förum við í Íslendingapartý (sjáum til hvað krakkarnir endast…) og það er stefnt á Dissneiland á föstudaginn. Við verðum hér annars fram á sunnudag en þá fljúgum við heim aftur í “venjulegheitin”.
Sendum okkar bestu kveðjur heim!
COMMENTS