Kvebbaland
2008-11-17Uncategorized Standard
Vííí, við búum í Kvebbalandi! Gleðin er aðallega tilkomin vegna þess að mér líður miklu betur en um helgina, þó svo að mig gruni að framundan séu margir snýtidagar og svo verður að spennó að sjá hvort þetta verði að alvöru hóstapest eða ekki. Anna Sólrún skemmtir sér konunglega við að snýta sér út í loftið og því stærri sem gula slumman er, því betra! Bjarki er ekki alveg viss hvort hann sé að fá pest eða klára pest, amk var hann sendur heim af leikskólanum í lok dags með 38 stiga hita og verður því heima á morgun. Nú bíðum við bara spennt eftir að sjá hvað heilsan hans Finns gerir á næstu dögum!