Eplið og eikin
2008-11-18Uncategorized Standard
Finnur (eikin) hefur alltaf átt erfitt með að kaupa sér skyrtur því að hann er svo grannur og handleggjalangur. Í dag uppgötvaði ég að Bjarki (eplið) á líklega eftir að eiga við sama vandamál að glíma, því við mátun á jólafötunum kom í ljós að allt passaði nema skyrtan – sem var allt of ermastutt! Við vippuðum okkur því í búðina og fundum skyrtu í næstu stærð og nú er að vona að hún dugi. 🙂