Botninn sleginn í bullið
2008-11-06Uncategorized Standard
Jæja, þá held ég að ég sé hætt að fikta í fyrirlestrinum. Best að prenta skrímslið út og láta það gott heita. Ég þakka allar góðu kveðjurnar sem mér hafa borist – svo og belgíska súkkulaðið sem birtist fyrir utan útidyrnar í dag. Í fyrramálið á ég tíma í klippingu, síðan þarf ég að redda veitingum fyrir mannskapinn, þá liggur leiðin upp í skóla að undirbúa og ganga úr skugga um að tækilega hliðin sé í lagi. Síðan er bara að vona að allt gangi vel! Ég læt fylgja með mynd sem ég tók af krökkunum núna áðan – svo sæt! 🙂