Til hamingju með afmælið Finnur!!
2008-07-29Uncategorized Standard
Hann er orðinn 34 ára þessi elska!! Ekki ætlar afmælisdagurinn samt að vera sá allra besti því hann vaknaði, fór á fætur og var kominn upp í rúm skömmu seinna, algjörlega orkulaus. Mig grunar að hér sé á ferð angi af leikskóla-plágunni sem ætlar engan enda að taka, amk talaði ég við kennara þar í gær sem lýsti yfir álíka orkuleysi.
Við ætlum nú reyndar ekkert að halda sérstaklega upp á daginn í dag, heldur er stefnan sett á næsta laugardagseftirmiðdegi. Ég veit ekki hvort að það verður komið grill í hús, við gætum þurft að fá það sent heim því að úrvalið í búðunum er heldur bara svona la-la… 🙂