Mætt á klakann
2008-05-10Uncategorized Standard
Jæja, þetta hafðist. Flugferðirnar gengu einstaklega vel og við erum mætt á klakann; mættum eldsnemma í morgun. Þórarinn sótti okkur og fór með okkur í Byggðarendann. Gaman að sjá hvað er búið að endurbæta mikið þar síðan þau seldu Álmholtið og fluttu inn hjá afa (afi fluttur inn á neðri hæðinni).
Hittum öll systkinin og suma makana og borðuðum saman ljúffengar vöfflur sem mamma eldaði og eftir á var rennt í Álagrandann til Ásdísar þangað til kominn var tími til að svæfa þreytta grísi.
Nú er síðasti grísinn (ég) á leið í rúmið og eina sem eftir er er að tilkynna um farsímanúmerið okkar: 867 2717 ef einhver þarf að ná í okkur. Gerum ráð fyrir að sofa til hádegis.
Góða nótt.