Af veikindum…
2008-04-27Uncategorized Standard
Þá er ný vinnuvika að hefjast. Anna er orðin spræk og hitalaus og verður send í leikskólann á morgun. En Bjarki litli er enn aumur greyið. Hann er búinn að umla í allt kvöld og vaknar öðru hverju funheitur og grætur sárt. Ég fór upp til hans áðan og reyndi mitt besta; reyndi öll trikkinn: kaldan klút á ennið, nudda magann, stinga upp í hann snuðinu og svo framvegis en hann bandaði mér bara frá sér, sneri sér á hina hliðina og umlaði “mamm-mamm-mamm-mamm-mamm” grátandi gegnum hlustunartækið þangað til móðurhjartað brast. 🙂 Hann er búinn að fá hitastillandi sem fer vonandi að virka bráðum og vonandi náum við að sofa eitthvað…
Hér er mynd sem Halli tók af fjölskyldunni úti í bakgarði um daginn.