Ég á afmæli’ í dag, ég á afmæli’ í dag…
2008-03-01Uncategorized Standard
Vííí – ég er orðin 31 árs!! Reyndar held ég að síðasta ár hafi verið þriggja ára virði og því er ég kannski 33 ára svona þannig séð. Eða kannski að tvö ár hafi bara verði hoggin af hinum endanum. Hver veit?!?
Það sem ég veit hins vegar að það er allt morandi í afmælum þessa dagana. Steinunn og Clint hennar Sonju fá líka afmæliskveðjur í dag og svo áttu/eiga Anthony, Guðrún, Óðinn og Eyrún afmæli þessa dagana svo fá séu nefnd. Ekki má svo gleyma átta ára brúðkaupsafmæli okkar hjónanna á mánudaginn. Jæks! 🙂