Gleðilegt nýtt ár!! Happy New Year!!
Þá er árið 2008 hafið og við óskum öllum gleðilegs nýs árs!! (Happy New year!!!) 🙂
Til að halda upp á daginn fórum við í kvöldmat til Sólveigar og Arnars og borðuðum hjá þeim dýrindis hamborgarahrygg. Við horfðum meiri að segja á innlenda annálinn og svo áramótaskaupið á breiðtjaldi – hvað gerði fólk fyrir tíma veraldarvefsins?! Bjarki svaf af sér veisluna, því eftir andvökudag gerði hann sér lítið fyrir og tók sér þriggja tíma lúr! Anna Sólrún lék sér vel og lengi með Nikulási og Freyju, eða þar til um níuleytið þegar þreytan náði yfirhöndinni og við héldum heim á leið. Við slúttuðum kvöldinu með Simpsons bíómyndinni, enda eru áramót hér í hljóðlátari kantinum þegar maður er vanur stríðsástandinu heima.
Við vonum að allir hafi átt gleðileg áramót en þó gengið varlega um gleðinnar dyr!