Vefsíðan var niðri
[Our website was down all yesterday due to a brief power outage and the fact that we didn’t realize the website computer didn’t turn itself on automatically after the power came back on.]
Vefsíðan var óvirk í gær sökum rafmagnsleysis. Rafmagnsleysið varði nú ekki lengi en við vorum búin að gleyma að tölvan ræsir sig ekki sjálfkrafa þegar rafmagnið kemur aftur á. Í morgun hjóluðum við Anna því saman upp í skóla (eftir að hafa skutlað í 4 þvottavélar) og ræstum tölvuna. Hún (Anna, ekki tölvan) er núna að leika sér að því að hefta saman blöð úr doktorsritgerð Hrefnu sem við fundum hér á borðinu – vonandi ekkert mikilvægt. 🙂
Smá grín. 😉 Hún situr á skrifborðinu við hliðina á mér, í flíspeysunni og með hjólahjálminn og er að dunda sér við að hefta í eitt autt blað sem við tókum úr prentaranum.