Pakkaflóð
2007-12-21Uncategorized Standard
Það ultu hreinlega inn kassarnir með jólagjöfum í dag. Meiriparturinn voru reyndar kassar með bókum frá Amazon frá okkur til Önnu, en ein bókin var fyrir mig. Um daginn mælti nefnilega sú sem sér um Ask Moxie með bókinni “Siblings Without Rivalry” og ég ákvað að láta til leiðast og kaupa nú loksins svona “uppeldisbók”. Það er skemmst frá því að segja að ég át bókina upp til agna núna í kvöld, allar 240 blaðsíðurnar. Fróðleg bók með mörgum góðum punktum, og ég sé fram á að þurfa að lesa hana aftur þegar fram líða stundir.