Heima
2007-10-03Uncategorized Standard
Bjarki er búinn að vera heim í rúma tvo sólarhringa núna og við erum svona að læra á drenginn og hann á okkur. Helst er brjóstagjöf að flækjast fyrir mér og þá á ég við brjóstagjöf vs. pelagjöf vs. pumpun. Við fórum með hann til barnalæknis strax í gær til að kynna hann og okkur. Við förum aftur á morgun til að láta vigta hann. Í fyrramálið er líka tími hjá augnlækninum. En núna er ég farin að sofa, eða amk eitthvað í þá áttina…