Sjötti dagurinn: Lekadagur
2007-06-18Uncategorized Standard
[Leaky leaky day. Spirits low but improving. Hoping for a quiet night.]
Lekadagur. Byrjaði að leka í nótt, blúbbaði svo af og til fram eftir degi mér til mikillar mæðu. Engir samdrættir að ráði samt svo þetta svamlar áfram í bili. Andlega hliðin ekki alveg á sínu sterkasta svelli, en held að skapið sé á uppleið núna í kvöld. Er að heimsækja táningasárin þökk sé REM. Hvað gerði fólk á spítölum fyrir tíma fartölva? Á morgun er vaxtar- og vökvasónar. Sjáum hvað setur.