Dagur 4 byrjaður
2007-06-10Uncategorized Standard
Dagurinn í gær leið og ekkert fór af stað, svo nú er komið að degi fjögur. Finnur er farinn með Önnu Sólrúnu í afmæli í nálægum garði til Kötlu þeirra Siggu og Mario, og á meðan ligg ég bara hér með fartölvu, hita- og kælibox með hádegismat og velti því fyrir mér hvernig ég ætti að snúa mér næst.
En sum sé, engar fréttir eru væntanlega góðar fréttir. Og þar með held ég að ég snúi mér á hina hliðina… 🙂