Búið að leggja Hrefnu inn
2007-06-12Uncategorized Standard
Var að koma heim frá lækninum. Þeir framkvæmdu sónar og staðfestu í þriðja skipti minni vökva á öðru barninu en gátu þó ekki staðfest (frekar en fyrri daginn) að belgurinn væri að leka en þeim finnst samt allt benda til þess. Þeir ákváðu því að leggja hana því inn á fæðingardeildina til skoðunar næstu daga. Ég er því heima að finna til dót sem hana vantar og svo rokinn upp á spítala aftur. 🙂
Lítið annað að frétta, dagurinn tíðindalítill að öðru leyti nema það að ég kíkti á Soffíu barnalækni sem er nýbúin að eiga tvíburana sína og er á sama spítala. Þau voru kát og glöð með nýju drengina sem sváfu vært og virðast bara dafna vel. Myndardrengir! 🙂