Uppskriftir
Ég kom mér upp uppskriftavef nýlega og hef verið að mjatla inn uppskriftir hægt og sígandi. Ekki mikið komið ennþá, bara nokkrar random uppskriftir sem ég átti handhægar í tölvupósti eða í skrá á tölvunni. Endilega kíkið á gripinn og látið vita hvað ykkur finnst. 🙂 – Já, tvíbbarnir ekki komnir og er með of mikinn tíma aflögu. 🙂
Annars er allt gott að frétta héðan úr hitabylgjunni – 34 gráður í dag þegar hæst var; krakkarnir fengu að leika sér úti um morguninn áður en það varð of heitt, en héldu sig annars inni mestan part dags. Anna tók svo síðdegisblund á leikskólanum með hinum krökkunum – kennurunum til mikillar undrunar, en hún er eiginlega hætt að sofa á leikskólanum. Það verður sífellt erfiðara að fá hana til að leggja sig hérna heima líka, ég náði henni niður um helgina fyrir viku síðan, en okkur tókst það ekki þessa helgina þótt mikið væri reynt.