Löng helgi
2007-05-27Uncategorized Standard
Memorial Day helgin er núna, frí á mánudeginum og meiningin að fara á ströndina á morgun með Adu og foreldrum hennar – sem við lékum okkur hjá í morgun eftir að ég fór með Önnu í hjólreiðatúr um svæðið. Á eftir er svo grillveisla hjá vinnufélaga mínum með núverandi og fyrrverandi vinnufélögum.
Hrefna hefur þessa dagana farið hamförum í myndasíðum (sjá hér til vinstri) 🙂
Núna eru þær stelpurnar að kalla á mig – kónguló innan í ljósinu á loftinu. Neyðarástand. 🙂