Besti eiginmaður í heimi! :)
Það er frí í vinnunni hjá Finni í dag. Ég tók því að mér að vakna með Önnu Sólrúnu og koma henni á leikskólann svo hann fékk að sofa smá út. Þegar hann vaknaði var ég hins vegar búin að skrifa niður laaaangan lista af tiltektar-atriðum sem ég hef verið með á heilanum í langan tíma, en ekki komið neinu af því í verk. Listinn greinilega orðinn svo langur að mér voru gersamlega búnar að fallast hendur. Hlutir eins og að henda öllum ónotuðu sjampó-dollunum í baðherbergisglugganum og fara með dótið hennar Önnu Sólrúnar úr stofunni og upp í herbergið hennar.
Eftir að hann var búinn að borða morgunmat (og ég leggja mig eftir orkuútlát morgunsins) þá byrjuðum við að taka smá til, en svo kvaddi ég og fór á skrifstofuna. Þannig að greyið Finnur er einn heima að taka til á frídeginum sínum á meðan ég sit í vinnunni. Ég er með smá samviskubit, en á móti kemur að ég er ótrúlega fegin! Besti eiginmaður í heimi, engin spurning!!! 🙂