2006-09-21Uncategorized Standard
Fimmtudagur 21. september 2006
Jólaferð
Alltaf getur maður fundið sér eitthvað til að dunda við á vinnutíma. Í þetta sinn réðst ég í að kaupa miða heim til Íslands um jólin – og niðurstaðan var sú að við fljúgum í gegnum Minneapolis og lendum þann 17. desember á Íslandi og förum aftur út þann 9. janúar tvöþúsunduogSJÖ. Fyrir þetta borgum við $800 á kjaft eða um 56 þús isk.
Við erum farin að taka við samsætisboðum, sérstakleg á milli 21. – 28. des þegar amma mín, mamma og strákarnir verða víst á Kanaríeyjum!!